Grunnnámskeið um vefjagigt verður haldið dagana 25., 27. febrúar og 3.,5 mars 2020
Um er að ræða 4ra daga fræðslunámskeið fyrir fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra, í húsnæði Þrautar að Höfðabakka 9. Fyrirlestrarnir fara fram frá kl. 16:30 - 18:30.
Fyrirlesarar: Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.
Þriðjudagur 25. febrúar : Vefjagigt og skyldir sjúkdómar; fjölþættmeðferð, en einstaklingsmiðuð. Hvað hjálpar vefjagigtarsjúklingum?
Fimmtudagur 27. febrúar: Vefjagigt og skyldir sjúkdómsmynd, greining, orsakir og meðferð.
Þriðjudagur 3. mars: Andleg heilsa vefjagigtarsjúklinga.
Fimmtudagur 5. mars: Lyf í vefjagigt. Fræðsla og spjall fyrir aðstandendur.
Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í lífi vefjagigtarsjúklinga og mikilvægt er að þeir þekki hlutverk
sitt.
Verð: kr. 34.500.- og innifalið er gjald fyrir einn aðstandenda og námsgögn. Skráning er hér að neðan. Nánari upplýsingar eru í síma 555-7750 eða á netfanginu www.thraut@thraut.is