Þraut


Fréttir

Dagskrá Þrautar vorið 2017

Á vorönn verður Þraut með áhugaverð námskeið í boði má þar nefna grunnnámskeið um vefjagigt, námskeið um þreytu/streitu og orkusparandi aðgerðir, námskeið og námskeið um verki og verkjastjórn  Þessi námskeið eru opin öllum.

Á vorönn verða þrjú  endurhæfingarholl en þau eru fyrir fólk sem hefur farið í gegnum greiningarferli í Þraut. 

Síðast liðið vor var farið af stað með ungmennaendurhæfingu og hittist hópurinn í maí, ágúst og aftur núna í janúar.  Stefnt er að byrja með nýjan hóp í vor.  

Starfsemi Þrautar  er í stöðugri þróun og mikill metnaður lagður í að auka þekkingu fólks á vefjagigt og langvinnum verkjum, bæta sjálfsárangur þess og lífsgæði.

Með kveðju, starfsfólk Þrautar

 

Dagskrá Þrautar vor 2017

 

Vefjagigt - grunnnámskeið ( 4 skipti x 2 klst frá kl. 16:30-18:30)

                        Námskeið 1 á vorönn:  24,26,31 janúar og 2 febrúar 2017

                        Námskeið 2 á vorönn:  28 febrúar, 2,7 og 9 mars 2017

                        Námskeið 3 á vorönn: 16,18,23 og 30 maí 2017

 

                        Verð : 28.500 kr

Verkir - Lausnarmiðuð fræðsla (4 skipti x 3 klst fyrir hádegi, eftir hádegi þann 18)

                        Haldið dagana 28 febrúar, 3.7 og 10 mars 2017

            Verð: 36.000 kr.

 

Þreyta/streita - lausnarmiðuð fræðsla (4 skipti x 3 klst fyrir hádegi)

                        Haldið dagana 25 og 28 apríl og 2 og 5 maí 2017

            Verð: 36.000 kr.

 

 

Allar nánari upplýsingar  og skráning á  námskeiðin eru á www.thraut.is eða í  síma 555-7750

Til baka

Til baka