Þraut


Fréttir

Vefjagigtarnámskeið í nóvember

Næsta námskeið um vefjagigt verður haldið dagana 13., 18., 20. og 25. nóvember 2014.


Um er að ræða 4ra daga fræðslunámskeið fyrir fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra, í húsnæði Þrautar að Höfðabakka 9. Fyrirlestrarnir fara fram frá kl. 16:30 - 18:30.

Fyrirlesarar: Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur
og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.

Dagskrá:

Fimmtudagur 13. nóvember: Vefjagigt og skyldir sjúkdómar; fjölþættmeðferð, en einstaklingsmiðuð. Hvað hjálpar vefjagigtarsjúklingum

Þriðjudagur 18. nóvember: Vefjagigt og skyldir sjúkdómsmynd, greining, orsakir ogmeðferð.

Fimmtudagur 20. nóvember : Andleg heilsa vefjagigtarsjúklinga.

Þriðjudagur 25. nóvember: Lyf í vefjagigt. Fræðsla og spjall fyrir aðstandendur.

Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í lífi vefjagigtarsjúklinga mikilvægt er að þeir þekki hlutverk
sitt.

Verð: kr. 25.500.- og innifalið er gjald fyrir einn aðstandenda og námsgögn. Skráning í síma 5557750 eða með því að senda póst á thraut@thraut.is.

Til baka