Námskeið um vellíðan ásamt æfingum í núvitund og jóga nidra.
Námskeiðið verður haldið dagana 29. janúar, 5.,12.,19. og 26. febrúar (fimm skipti)
kl 17:00- 18:15
Helstu áhersluþættir námskeiðsins:
- Fræðsla um vellíðan út frá kenningum í jákvæðrar sálfræði.
- Kenndar æfingar til að auka vellíðan.
- Fræðsla um streitu m.a. muninn á bráðri og langvinnri streitu. Farið í einkenni og
orsakir langvinnrar streitu ásamt því hvernig hægt er að minnka hana. Hver og einn
skoðar sína helstu streituvalda.
- Núvitundaræfingar og jóga nidra.
Uppbygging námskeiðs: Hver tími byrjar á stuttri núvitundaræfingu. Síðan er 15 - 20 mín. fræðsla um vellíðan, streitu, núvitund, jóga nidra og fleira. Að lokum er 45 mín jóga nidra hugleiðsla og djúpslökun. Lögð er áhersla á að þátttakendur geri heimaæfingar.
Verð: 18.900 kr – innifalin eru námsgögn.
Staðsetning: Höfðabakki 9, í húsnæði Þrautar – miðstöð vefjagigtar og sjúkraþjálfunarinnar Styrks.
Leiðbeinandi: Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir hjúkrunarfræðingur, markþjálfi, yoga nidra kennari með framhaldsmenntun frá Amrit institute og með diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.
Skráning: Nánari upplýsingar eru á netfanginu ingibjorg@thraut.is eða í síma 841-1300. Skráning hér að neðan