Grunnnámskeið um vefjagigt verður haldið dagana 16.,18., 23. og 25. ágúst 2022
Um er að ræða 4ra daga fræðslunámskeið fyrir fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra, í húsnæði Þrautar að Höfðabakka 9. Einnig er hægt að taka námskeiðið sem vefnámskeið í gegnum Zoom. Fyrirlestrarnir fara fram frá kl. 16:30 - 18:30.
Fyrirlesarar: Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.
Þriðjudagur 16. ágúst Vefjagigt og skyldir sjúkdómar; fjölþættmeðferð, en einstaklingsmiðuð. Hvað hjálpar vefjagigtarsjúklingum?
Fimmtudagur 18. ágúst : Vefjagigt og skyldir sjúkdómsmynd, greining, orsakir og meðferð.
Þriðjudagur 23. ágúst : Andleg heilsa vefjagigtarsjúklinga.
Fimmtudagur 25. ágúst : Lyf í vefjagigt. Fræðsla og spjall fyrir aðstandendur.
Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í lífi vefjagigtarsjúklinga og mikilvægt er að þeir þekki hlutverk sitt.
Verð: kr. 39.000 kr- og innifalið er gjald fyrir einn aðstandenda og námsgögn. Skráning er hér að neðan. Nánari upplýsingar eru í síma 555-7750 eða á netfanginu www.thraut@thraut.is